sunnudagur, 28. september 2008

Skóli

Ég er svo ógeðslega ánægð í skólanum að það er ekki einusinni fyndið. Ég er loksins búin að finna eitthvað nám sem ég er svo að fíla í tætlur :D

Ég er sem sagt í 6 tímum,
Verkleg fatagerð kvenna
Verkleg fatagerð karla,
Sniðagerð kvenna,
Sniðagerð karla,
Grunnteikningu og
Bókfærslu.

Mér gengur alveg geðveikt vel öllum tímunum mínum.

Ég var einmitt í prófi í grunnteikningu síðasta föstudag, og ég fékk út úr því í fyrradag og ég fékk 9,6!!!!! Og það er snilld :) Ég er ekkert smá stolt :D

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flott hjá þér Dagmar mín.
Doddi

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra að þér gengur svona vel elskan mín í skólanum og að námið sé svona skemmtilegt.

Ég elska þig,
þín mamma.

Villi sagði...

Þetta er nú frábært að heyra. Ég bíð bara eftir þeim tíma þegar ég verð endalaust í skraddarasaumuðum fötum frá dóttur minni...

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með prófið :) frábært hvað þér líkar vel í skólanum. Þegar ég er orðin Indiana Jane fæ ég þig til að sauma á mig einhvern flottan galla :P

kv.
Þórdís

Nafnlaus sagði...

Hey ég tók grunnteikningu þegar ég byrjaði í framhaldsskóla, ef ég man rétt þá var mín lokaeinkunn þar 7 eða 9 hehe....

vennesla sagði...

Frábært hjá þér elsku Dagmar Ýr. Alltaf gaman þegar maður lendir á "réttri" hillu í lífinu:-) Koss og knús frá Maju frænku