laugardagur, 29. nóvember 2008

Dugnaður

Jæja, þá er komið að því að mamma er að koma til landsins...og það þýðir að það er engin afslöppun á þessu heimili...það þarf að taka ALLT í gegn og þrífa bara hátt og látt svo það verður friður :P nei...ég segi svona bara :P en það verður samt að þrífa...

Þannig að ég og Svava tókum okkur til í kvöld og tókum til, ryksuguðum (við viljum þakka Níelsi fyrir að lána okkur ryksuguna sína :D gegt góður) og skúruðum...

Talandi um að skúra...finnst mér fátt leiðinlegara en að ná í fötu, tusku, burstan sem við notum til að ýta tuskunni á milli staða og svo þurfa að stoppa til að bleyta tuskuna af og til...þetta gerir mig geðbilaða af því að ég enda alltaf á hnjánum eftir að gefast upp á þessum bursta...og þið sem þekkið mig vita það að mér finnst það mjög óþægilegt :P

En svo fór Berglind (stelpa sem er með mér í bekk) að tala um moppu sem hún keypti í Bónus...alveg rosalega sniðugt fyrirbæri :P Maður hellir sem sagt heitu vatni og sápu inní moppuna sjálfa og svo ýtir maður niður á handfangið og vatnið sprautast út!! Ég ákvað að nota flösku peninginn í það að kaupa svona moppu. Og þetta er mesta snilld sem ég veit um...ef allir áttu svona moppu mundu ekki vera stríð...allir væru of uppteknir að skúra :P Ég ætlaði allavega ekki að vilja hætta að skúra mér fannst þetta svo æðislegt :D

Og hér er ein mynd af mér með Undurmoppunni...

Þið sjáið kannski að ég er í vettlingum...ef þið sáuð þetta þá eru þið mjög líklega að velta því fyrir ykkur af hverju maður mundi vera í vettlingum inni þegar maður er að skúra...og það er MJÖG góð ástæða fyrir því...ég fattaði auðvitað aðeins og seint að moppan er út stáli...og ég var að hella frekar heitu vatni ofaní hana...það var ekki sjóðandi eða neitt...en samt svona óþægilega heitt. Það var ekki hægt að snerta moppuna hún var svo heit...þannig að ég reddaði mér bara :P

Og svo er hér ein mynd af mér of Svövu :)

Og það sést greinilega að hún fílar að láta taka mynd af sér...alveg að reyna að troða mér útúr myndinni :P

En allavega...mig langaði bara að segja ykkur frá þessu svakalegu tæknibyltingu sem ég fæ ekki nóg af :P

3 ummæli:

MIA sagði...

hahaha góð.... gegg sniðug moppa... núna langar mig í svona moppu.....

Þið eruð svo krúttlegar :D ;)

Bið að heilsa :D

Nafnlaus sagði...

vóóó þú mátt nú bara þakka fyrir að fá að vera á þessari mynd. Þetta skúringatól þitt er velkomið hingað norður ásamt skúringakonunni. Nóg að skúra á þessu heimili

Dagmar Ýr sagði...

hahahahahahahaha góður Jóhanna :P